Notkunarleiðbeiningar
Cosentyx® 300 mg UnoReady lyfjapenni
It looks like you are using an older version of Internet Explorer which is not supported. We advise that you update your browser to the latest version of Microsoft Edge, or consider using other browsers such as Chrome, Firefox or Safari.
Cosentyx® 300 mg UnoReady lyfjapenni
Lestu ALLAR þessar leiðbeiningar fyrir inndælingu.
Þessar leiðbeiningar eru til að hjálpa þér að nota Cosentyx UnoReady lyfjapennann á réttan hátt.
Mikilvægt er að þú reynir ekki að gefa þér lyfið sjálf/sjálfur fyrr en þjálfun hefur fengist hjá lækninum, hjúkrunarfræðingnum eða lyfjafræðingi.
Mikilvægt er að Cosentyx 300 mg UnoReady lyfjapenninn sé auðveldur í notkun. Horfðu á myndbandið hér að neðan um hvernig á að sprauta sig á réttan hátt með Cosentyx 300 mg UnoReady lyfjapennanum og taktu eftir því hvað það er sem þú þarft að hafa í huga áður en inndælingin er gefin.
Áður en þú notar Cosentyx 300 mg UnoReady lyfjapennann í fyrsta sinn á heilbrigðisstarfsmaður með viðeigandi þjálfun að sýna þér hvernig á að sprauta sig með Cosentyx (secukinumabi) á réttan hátt. Láttu heilbrigðisstarfsmanninn vita ef þér finnst þú ekki hafa fengið nægar upplýsingar og/eða þjálfun eða ef þig vantar enn svör við einhverju.
Cosentyx 300 mg UnoReady lyfjapenni er sýndur hér fyrir ofan þegar hettan hefur verið tekin af. Ekki fjarlægja hettuna fyrr en þú ert tilbúin/tilbúinn að gefa lyfið.
Ekki nota Cosentyx UnoReady lyfjapennann ef innsiglið á ytri öskjunni er rofið.
Geymdu Cosentyx UnoReady lyfjapennann í innsigluðu ytri öskjunni til varnar gegn ljósi þar til þú ert tilbúin/tilbúinn að nota hann.
Geymdu Cosentyx UnoReady lyfjapennann í kæli við hita á milli 2°C og 8°C og þar sem börn ná ekki til.
Nálin er hulin af nálarvörninni og nálin sést ekki. Ekki snerta eða ýta á nálarvörnina þar sem þú getur hlotið skaða vegna nálarstungu.
Fylgir í öskjunni:
Nýr og ónotaður Cosentyx 300 mg UnoReady lyfjapenni.
Fylgir ekki í öskjunni:
Taktu Cosentyx 300 mg UnoReady lyfjapenna úr kælinum 30-45 mínútum fyrir inndælinguna þannig að hann nái stofuhita.
1. Mikilvæg öryggisatriði sem þarf að skoða fyrir inndælingu:
Glugginn:
Vökvinn á að vera tær. Liturinn getur verið frá því að vera enginn í að vera lítillega gulleitur.
Ekki nota lyfið ef vökvinn inniheldur auðsjáanlegar agnir, er skýjaður eða greinilega brúnn. Þú getur séð litlar loftbólur, sem er eðlilegt.
Fyrningardagsetning:
Athugaðu fyrningardagsetninguna (EXP) á Cosentyx UnoReady lyfjapennanum. Ekki nota lyfjapennann ef komið er fram yfir fyrningardagsetninguna.
Vertu viss um að lyfjapenninn innihaldi rétt lyf og réttan skammt.
Hafðu samband við lyfjafræðing ef lyfjapenninn stenst ekki allar þessar skoðanir.
2a. Veldu stungustað:
2b. Umönnunaraðilar og heilbrigðisstarfsfólk eingöngu:
3. Stungustaðurinn hreinsaður:
4. Hettan fjarlægð:
5. Haldið á lyfjapennanum:
Meðan á inndælingunni stendur munt þú heyra 2 smelli.
Fyrri smellurinn gefur til kynna að inndælingin sé hafin. Nokkrum sekúndum síðar mun síðari smellurinn gefa til kynna að inndælingunni sé næstum lokið.
Þú verður að halda lyfjapennanum áfram þétt upp að húðinni þar til þú sérð grænan vísi með gráum enda fylla gluggann og hætta að hreyfast.
6. Inndælingin hafin:
7. Inndælingunni lokið:
8. Skoðaðu hvort græni vísirinn fylli gluggann:
9. Förgun á Cosentyx 300 mg UnoReady lyfjapennanum: